Skráðu þig endilega á póstlistann hjá okkur og fáðu nýjustu upplýsingar um SplitCam strax og þær berast. Þú getur skráð þig af listanum hvenær sem er. Netfanginu þínu verður ávallt haldið leyndu!

Nafn: Netfang:
SplitCam

SplitCamera er ókeypis myndbandsklónunar forrit sem gerir þér kleift að nota einn og sama myndbandsmiðilinn (t.d. vefmyndavél) í fleiri en einu forriti í einu. Undir venjulegum kringumstæðum t.d. með vefmyndavél þá er einungis hægt að nota hana í einu forriti í einu. Enginn eiginleiki innan Windows stýrkerfisins gerir manni kleift að deila myndinni á fleiri forrit. SplitCam stýrillinn gerir þér kleift að klóna vefmyndina þína þannig að þú getur notað hana á sama tíma í spjallforritum eins og ICQ, Yahoo Messenger, MSN, Skype, Camfrog, AOL AIM, Pal Talk ofl. Með SplitCam getur þú skipt myndabandsmiðlinum upp á milli 64 annarra miðla/forrita. Í stuttu máli sagt, eins og nafnið SplitCam gefur til kynna þá skiptir forritið myndbandsstraumnum frá ákveðnum myndbandsmiðli upp og dreifir honum til annarra miðla.

 Notagildi

Þegar myndbandsmiðlar eins og vefmyndavél, stafræn myndbandsuppökuvél, sjónvarpsviðtæki eða sjónvarpskort hefur verið sett upp er undir venjulegum kringumstæðum einungis hægt að nota þann miðil með einu Windows forriti í einu. Ef annað forrit, sem notar sama myndabandsmiðilinn er ræst birtist villuskilaboð um að viðkomandi myndbandsmiðill sé núþegar í notkun. Við þessu er þá brugðist með því að slökkva á fyrra forritinu sem er að nota myndbandsmiðilinn eða einfaldlega með því að sleppa því að nota seinna forritið. Í sumum tilvikum getur verið mjög nauðsynlegt eða einstaklega notadrjúgt að nota t.d. vefmyndavél í meira en einu forriti í einu. Segjum að þú viljir notast við vefmyndavél við fundarhald í gegnum netið en vilt geta tjáð þig við hvern og einn í sitthvoru lagi? Eða ef þú vilt taka upp vefmyndarspjall með uppáhalds upptökuforritinu þínu? Eða ef þú vilt sýna vini þínum uppáhalds DVD myndina þína t.d. í gegnum Skype en vilt líka að hann sjái þig í gegnum vefmyndavélina?

Það er einmitt þetta vandamál sem SplitCam forritið leysir svo snilldarlega og er eina forritið á markaðnum sem gerir þetta mögulegt! Það eina sem þú þarft að gera er að hlaða niður SplitCam forritinu, setja það upp, tengja myndbandsmiðilinn við það og þá geta önnur forrit tengst miðlinum í gegnum SplitCam myndbandsstýrilinn. Hvert myndbandsklón mun að sjálfsögðu vera nákvæm eftirlíking af upprunalega myndbandsmiðlinum, eins þú værir í raun og veru með marga myndbandsmiðla tengda við tölvuna.
 

Helstu eiginleikar

Notaðu næstum hvaða myndbandsmiðil sem er.
Stafrænn aðdráttur.
Stafræn vinklun, allt að 180°.
Veldu ákjósanlega rammatíðni allt frá 5 til 30 rammar á sekúndu. 15 rammar á sekúndu eru t.d. vanalega notaðir í venjulegu vefmyndarspjalli.
Stilltu grunnstillingar myndbandsmiðilsins beint úr SplitCam aðalglugganum.
Fáðu upp ítarlega valmöguleika til að fínstilla myndbandsmiðilinn.
Notaðu hinar ýmsu upplausnir sem forritin bjóða uppá: 160x120, 320x240, 640x480 osfrv.
Hvert forrit getur haft sína eigin upplausn.
Þú getur haldið álaginu niðri á örgjörvanum með því að afvirkja ónýttar upplausnir.
Sjálfvirkar uppfærslur á forritinu auðvelda þér að vera ávallt með nýjustu útgáfuna.
Þú getur miðlað ljósmyndunum þínum til annarra forrita eins og um væri að ræða myndbandsmiðil.
Þú getur gert einfaldar breytingar á ljósmyndum áður en þær eru sendar áfram til annars miðils/forrits.
Breyttu útlitinu á SplitCam notandaviðmótinu með því að velja útlit hannað af öðrum notendum eða hannaðu eigið útlit með aðstoð innbyggðs útlitsforrits.


Í vinnslu

Hljóðskipting.
Styðja fleiri myndbandsstýrla.
Geta bætt auka texta eða mynd ofan á myndbandsstrauminn.

Kerfiskröfur

Stýrikerfi: Windows 98, Windows ME, Windows 2000, Windows XP eða nýrra.
Örgjörvi: Intel Pentium eða betri.
Vinnsluminni: 128Mb, ráðlagt er að hafa meira vinnsluminni.
Annað: DirectX 9 eða nýrra.

SplitCam - Uppsetning

Náðu í SplitCam með því að hlaða því niður hér af síðunni.
Keyrðu uppsetningarskránna með því að tvísmella á hana og fylgdu þeim leiðbeiningum sem upp koma.
Þegar SplitCam er ræst í fyrsta skipti færðu tilkynningu um að setja verði upp myndbandsstýrilinn. Svaraðu öllum spurningum uppsetningarinnar játandi.






privacy notice


Icelandic Dutch Turkish English Russian Romanian Italian Hebrew Bulgarian Chinese Portugal Czech Hungarian German :: Home ::